| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 961014 - 961020, vika 42
Til að prenta kortið má nota
postscript
Mjög mikil skjálftavirkni var þessa viku. Samtals hafa
verið staðsettir um 1200 skjálftar í vikunni og eiga flestir
þeirra upptök við Bíldsfell í Grafningi og á Hengilssvæðinu.
Þórunn Skaftadóttir hjálpaði einnig við að yfirfara skjálftana.
Ný SIL stöð komst í gagnið um miðjan dag þann 14.10. 1996.
Hún heitir Sandskeið (san) og er við Sandskeið hjá Vífilsfelli.
SUÐURLAND:
Þann 14.10. varð skjálfti að stærðinni 4.1 með upptök
suðvestan við Bíldsfell í Grafningi. Forskjálftar voru
á svæðinu daginn og nóttina áður. Skjálftann fannst
allt vestur í Búðardal en hann fannst mjög vel
á Selfossi. Í kjölfar skjálftans fylgdu ótal eftirskjálftar
og varaði hrinan á þessum slóðum fram yfir næstu helgi (20.10.)
Upptök skjálftanna eru á dýpinu 3-5 km. Brotlausn stóra skjálftans
sýnir hægri sniðgengishreyfingu (á N-S plani).
Næstu daga á eftir urðu smáskjálftahrinur víða á Hengilssvæðinu
og vestan við Hjalla í Ölfusi.
Nokkrir skjálftar hafa verið í Mýrdalsjökli og þá aðallega í
honum vestanverðum.
MIÐ-ÍSLAND:
Að jafnaði hafa verið um 2-3 skjálftar á dag norðan við
Tungnafellsjökul og í Bárðarbungu. Stærðir skjálftanna eru
um 3.0. Í sumum tilfellum er staðsetning frekar
illa akvörðuð.
NORÐURLAND:
Fremur lítil skjálftavirkni hefur verið fyrir norðurlandi.
Skjálftarnir eru aðallega á Grímseyjarbeltinu. Austan við
Grímsey og í Öxarfirði.
Gunnar Guðmundsson