| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 961216 - 961222, vika 51
Til að prenta kortið má nota
postscript
Skjálftavirkni var tiltölulega lítil þessa viku og samtals voru 213 skjálftar
staðsettir.
Suðurland
Þann 20. desember var skjálftahrina við Krísuvík. Stærsti skjálftinn
var kl. 12:55, M=2.4. Hann ásamt nokkrum öðrum fundust í Krísuvík.
Smáskjálftahrina var vestan við Bjarnastaði í Ölfusi þann 19. desember.
Nokkrir skjálftar voru við sunnanverðan Langjökul.
Á Torfajökulssvæðinu eru nokkrir atburðir. Staðsetning þeirra er ónákvæm.
Norðurland
Skjálftar voru nær eingöngu á austanverðu Tjörnesbrotabeltinu, í Öxarfirði og
við Flatey.
Hálendið
Virkni er enn talsverð í Vatnjökli. Þann 22.12. og voru nokkrir
skjálftar við Esjufjöll í Vatnajökli.
Gunnar B. Guðmundsson