| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 970714 - 970720, vika 29
Til að prenta kortið má nota
postscript
Suðurland
Verulega dróg úr skjálftavirkni á Hengilssvæðinu
miðað við vikuna á undan. Tveir stærstu skjálftarnir voru að stærð 2.6.
Annar við Súlufell þann 17. júlí kl. 0921 og hinn suður af Hengli þann 20. júlí kl. 1713.
Við Sultartanga ofan Búrfells er sprenging.
Norðurland
Mánudaginn 14. júlí voru smáskjálftahrinur fyrir mynni Eyjafjarðar
og norður af Siglufirði.
Þann 16. júlí var hrina austur af Grímsey og daginn eftir var smáhrina
inn í Öxarfirði.
Þann 14. júlí er líklega sprenging við Akureyri.
Hálendið
Fáeinir skjáftar eru í Mýrdalsjökli, Vatnajökli, Tungnafellsjökli og á
Torfajökulssvæðinu.
Gunnar B. Guðmundsson