| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 980105 - 980111, vika 02
Til að prenta kortið má nota
postscript
Alls voru 271 atburðir (skjálftar og sprengingar) staðsettir þessa viku.
Suðurland
Alltaf er einhver smáskjálftavirkni á Hengilssvæðinu.
Um miðja vikuna urðu nokkrir smáskjálftar á Mosfellsheiðinni (við Eiturhól).
Norðurland
Mjög lítil skjálftavirkni var fram eftir vikunni. Laugardaginn
10. janúar kl. 2020 hófst skjálftahrina um 15 km austan við Grímsey sem
stóð með hléum fram á sunnudagskvöld. Rúmlega 60 skjálftar mældust á þessum tíma.
Stærsti skjálftinn í hrinunni var sunnudaginn 11. janúar kl. 1920 , M=3.5.
Hálendið
Enn er töluverð skjálftavirkni undir Mýrdalsjökli og
þá aðallega undir vestanverðum jöklinum. Stærsti skjálftinn þar var
þann 10. janúar kl. 11:08, M=2.5. Hafa ber í huga að upptök sumra
skjálftanna eru ekki mjög vel ákvörðuð.
Þann 11. janúar kl. 2038 átti einn skjálfti (M=3.5) upptök í Kverkfjöllum.
Gunnar B. Guðmundsson