Jarðskjálftahrina á Kolbeinseyjarhrygg (Jan Mayen svæði) þann 1. júlí 1999

[Kolbeinseyjarhryggur og Jan Mayen]
Á kortinu tákna rauðir fylltir hringir upptök jarðskjálfta. Fjólublá lína sýnir plötuskilin milli N-Ameríkuplötunnar og Evroasíuplötunnar. Svartir þríhyrningar sýna SIL jarðskjálftastöðvar.

Frá miðnætti og fram til um kl. 06 þann 1. júlí var allmikil jarðskjálftahrina á Kolbeinseyjarhrygg um 500 km norður af Íslandi (Jan Mayen svæði). Skjálftarnir komu mjög vel fram á óróavakanum í SIL kerfinu (sjá hér fyrir neðan). Út frá honum voru skjálftarnir vistaðir á SIL stöðvunum og síðan staðsettir. Þar sem upptök jarðskjáltanna eru mjög langt í burtu frá SIL stöðvunum er staðsetning þeirra ekki mjög nákvæm. Upptökin ættu að vera nokkuð vestar en sýnt er á myndinni hér að ofan. Stærðir skjálftanna í SIL kerfinu eru einnig mjög vanmetnar (sjá töflu hér neðar). Samkvæmt EMSC (Data messages) og NEIC eru stærstu skjálftarnir í hrinunni um 5.1 að stærð (kl. 02:06, 02:08 og 03:20).

Óróavaki]
Myndin sýnir óróavakaplott (Einar Kjartansson) frá nokkrum SIL stöðvum á Norðurlandi. Topparnir á myndinni sýna jarðskjálftana á Kolbeinseyjarhrygg.

Staðsetningar og stærðir úr SIL kerfinu:

Dags.TímiBreiddLengdDýpi(km)MlSvæði
1999-07-0100:33:25.34770.13767-13.640674.52.5Jan Mayen
1999-07-0101:27:37.46270.09293-13.505475.02.9Jan Mayen
1999-07-0101:28:24.70069.95856-13.638475.02.6Jan Mayen
1999-07-0101:46:28.65470.08647-13.649275.02.4Jan Mayen
1999-07-0102:02:24.28970.15146-13.849905.02.7Jan Mayen
1999-07-0102:03:01.87070.15937-14.232225.03.0Jan Mayen
1999-07-0102:06:55.64070.15524-13.630734.84.1Jan Mayen
1999-07-0102:07:59.79670.10944-13.765214.83.8Jan Mayen
1999-07-0102:55:34.63570.15510-13.607635.03.0Jan Mayen
1999-07-0103:20:40.51970.06230-13.817535.03.5Jan Mayen
1999-07-0103:26:34.06669.95947-13.917305.03.5Jan Mayen
1999-07-0104:50:06.04170.08099-13.645665.02.8Jan Mayen
1999-07-0105:00:58.43370.09658-13.470105.02.5Jan Mayen
1999-07-0105:01:32.42470.17318-13.460495.02.4Jan Mayen
1999-07-0105:05:29.50270.06954-13.563815.02.5Jan Mayen
1999-07-0105:40:40.41569.96980-13.703065.02.4Jan Mayen


Gunnar B. Guðmundsson - gg@vedur.is