Hæst ber skjálftahrinur í Þórisjökli og við Kleifarvatn. Því miður eru ekki allir skjálftar frá 24.júlí og 25.júlí
hér inná kortum, en úr því verður bætt eins fljótt og auðið er.
Suðurland
Nokkrir skjálftar mældust í Mýrdalsjökli og í Eyjafjallajökli á mánudag og þriðjudag. Á þriðjudaginn jókst virknin
við Kleifarvatn og þar voru staðsettir rúmlega 80 skjálftar yfir sólarhringinn. Stærsti skjálftinn
var 2.6 en flestir voru innan við 1 á Ricther.
Á miðvikudaginn dróg aðeins úr skjálftavirkninni við Kleifarvatn.
Þar mældust tæplega 30 skjálftar sá stærsti þeirra 2.5 að stærð. Nokkrir skjálftar mældust í Mýrdals- og
Eyjafjallajökli allir rúmlega 1.
Virknin við Kleifarvatn á fimmtudeginum var svipuð og daginn áður. Einn skjálfti
uppá 2.4 mældist í Mýrdalsjökli.
Föstudagurinn var heldur rólegur. Þrjátíu skjálftar voru staðsettir, flestir þeirra
á Hengilssvæðinu og við Kleifarvatn. Tveir skjálftar mældust í Mýrdalsjökli báðir rúmlega 1.
Hrinan í Sveifluhálsi við SV-enda Kleifarvatns jókst til muna aðfaranótt sunnudagsins og þar hafa fjórir skjálftar
mælst stærri en 2.5.
Norðurland
Nokkrir skjálftar mældust fyrir norðan land.
Hálendið
Aðfaranótt laugardagsins hófst hrina í í Þórisjökli mðe skjálfta kl. 3:43 af stærðinni 4. Síðan hafa orðið 15
skjálftar af stærðinni 2.5-3.3 í Þórisjökli, flestir á laugardag og sunnudag.
Í Vatnajökli mældist skjálfti af stærðinni 2.6 á Lokahrygg.