| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 991115 - 991121, vika 46
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni voru 251 atburðir staðsettir.
Suðurland
Tiltölulega lítil skjálftavirkni var á Reykjanesskaganum og á
Hengilssvæðinu. Á Suðurlandi voru nokkrir skjálftar vestan við Hestvatn. Sá
stærsti var þann 15.11. kl. 19:02, M= 2.2.
Norðurland
Að kvöldi þess 15. nóv. byrjaði skjálftahrina um 14 km NNA af Grímsey sem
stóð fram til 20. nóvember. Mest var virknin dagana 18. og 19. nóvember.
Stærsti skjálftinn í hrinunni var þann 18.11. kl. 21:02, M=3.1.
Hálendið
Um 33 skjálftar mældust undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli í vikunni. Flestir
skjálftanna undir Mýrdalsjökli voru í vesturhluta hans en skjálftarnir undir Eyjafjallajökli
áttu upptök sín sunnan við toppgíginn. Flestir urðu skjálftarnir föstudaginn 19. nóvember
og þá einnig þeir stærstu. Í V-Mýrdalsjökli var stærsti skjálftinn þann 19.11. kl. 16:37, M=2.3og stærsti skjálftinn undir Eyjafjallajökli var sama kvöld kl. 22:12, M=1.8.
Þann 19.11. og 20.11. mældust einnig skjálftar á Torfajökulssvæðinu. Þrír smáskjálftar
voru í vesturhluta Hafurseyjar.
Um 55 ísskjálftar mældust í Skeiðarárjökli þann 15.11. og fram að hádegi þann 16.11.
Þessir smáu ísskjálftar í Skeiðarárjökli hófust um kl. 17 fimmtudaginn 11. nóvember og
stóðu nær óslitið fram að hádegi þann 16.11. og tengjast smáu Skeiðarárhlaupi.
Þrír skjálftar mældust í Vatnajökli, NV við vestari Skaftárketilinn.
Sunnudaginn 21. nóvember voru 2 skjálftar norðaustantil í Hofsjökli kl. 18:01 og
18:08. Báðir voru um 1.8 að stærð.
Gunnar B. Guðmundsson