Í byrjun vikunnar var smá hrina sunnan Hestfjalls og samtímis mældust
skjálftar við Skjaldbreiði. Annars var nokkuð jöfn virkni dreifð um mest allt
Suðurlandsundirlendið þessa vikuna. Í byrjun vikunnar var virknin á Reykjanesi
mest í norðanverðu Kleifarvatni. Upp úr miðri vikunni hófst virkni norðan
Skíðaskálans í Hveradölum, sem síðan fluttist að Grindarskörðum og loks
að austanverðu Kleifarvatni. Virknin endaði svo aftur í Hveradölum í lok
vikunnar.
Norðurland
Nokkur virkni hefur verið úti fyrir Norðurlandi, allt frá Skagafirði að
Melrakkasléttu. Nokkrir skjálftar mældust í Fljótunum, þeir stærstu tæpir 2 á
Richterskvarða. Einn skjálfti mældist rúmlega 500 km norður á hrygg.
Hálendið
Með rólegra móti á hálendinu. Ekki mældust nema tveir skjálftar í vestanverðum
Mýrdalsjökli og einn í Eyjafjallajökli. Þrír skjálftar mældust kringum
Torfajökulssvæðið og einn á Lokahrygg.