Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20000529 - 20000604, vika 22

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Fremur rólegt var þessa viku eins og undanfarið, mældir voru 140 skjálftar. Virknin var fremur dreifð og náði út á Reykjaneshrygg, þar sem 4 skjálftar mældust.

Suðurland

Skjálftarnir voru mjög dreifðir. Stærsti skjálftinn í Henglinum var 2.1 stig, en aðrir skjálftar á Suðurlandi voru smáir.

Norðurland

Lítil virkni utan hrinu við Grímsey þann 3. júní. Stærsti skjálftinn 3.3 stig var kl 07:00, og fannst hann í eynni. Upptök skjálftans voru um 3 km NNV við Grímsey, og honum fylgdu rúmir þrír tugir smárra skjálfta.

Hálendið

Í Mýrdalsjökli vestanverðum mældust tveir skjálftar, báðir 0.8 stig, og í Eyjafjallajökli norðanverðum var einn skjálfti 1.4 stig. Norðan Mýrdalsjökuls og vestan Torfajökuls voru nokkrir skjálftar að stærð 0.7 - 1.4 stig, en þeir dreifðust nokkuð um svæðið. Þá voru tveir skjálftar í Vatnajökli, báðir 1.4 stig að stærð.

Þórunn Skaftadóttir