Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20010101 - 20010107, vika 01

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni mældust 286 skjálftar á og við landið.

Suðurland

Á Suðurlandi var virknin mest sem fyrr á Holta- og Hestfjallssprungunum. Allir voru skjálftarnir smáir, sá stærsti 1.8 stig á sunnanverðri Hestfjallssprungunni, þar sem skjálftarnir voru flestir.

Norðurland

Nokkrir skjálftar voru skammt frá Gjögurtá, sá stærsti 2.2 stig. Í Öxarfirði voru einnig nokkrir skjálftar, sá stærsti 1.8 stig.

Hálendið

Í Mýrdalsjökli mældust rúmlega þrír tugir skjálfta. Flestir voru í vestanverðum jöklinum, og voru 6 þeirra yfir 2 stig að stærð. Tveir þeir stærstu voru 2.5 stig. Einn skjálfti 0.8 stig varð í Eyjafjallajökli. Í Vatnajökli voru 5 skjálftar, austan við Hamarinn og norðan Grímsfjalls. Einn þeirra var 2.1, en aðrir um 1 stig að stærð. Í Hofsjökli voru tveir skjálftar rúmlega 1 stig.

Þórunn Skaftadóttir