Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20010514 - 20010520, vika 20

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni mældist 171 skjálfti.

Suðurland

Einhver skjálftavirkni heldur áfram á Holta- og Hestfjallssprungum. Nokkrir skjálftar mældust á Hengilssvæðinu og í Ölfusinu. Einn skjálfti mældist á Reykjanesi, við Sveifluháls, 1.7 að stærð.

Norðurland

Framan af vikunni var virknin aðallega á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Einnig mældust nokkrir skjálftar 20 - 30 km ASA af Grímsey, sá stærsti 2.5 stig. Á laugardag hófst hrina í Öxarfirði um kl. 13:30 og stóð til kl. 21. 25 skjálftar mældust, 0.8 - 2.6 stig, og voru þeir á 1 - 3 km dýpi.

Hálendið

Í Mýrdalsjökli mældust fjórir skjálftar, sá stærsti 1.0, en staðsetning þeirra er fremur ónákvæm. Einn skjálfti mældist í Eyjafjallajökli, 0.9 að stærð. Við Torfajökul var einn skjálfti (0.6) og einn við Tindfjallajökul (0.5). Einn skjálfti mældist á Lokahrygg, austan Hamarsins, 2.0 að stærð. Sunnan Langjökuls, við Högnhöfða, mældust nokkrir smáskjálftar (0.2 - 0.6)

Bergþóra S. Þorbjarnardóttir