| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20020204 - 20020210, vika 06
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni voru staðsettir 184 skjálftar og 2 sprengingar.
Suðurland
Aðfaranótt 5. febrúar mældust nokkrir skjálftar á Reykjanesi. Stærsti skjálftinn
í þessari smáhrinu var kl. 02:57 , M=1.4. Skjálftarnir virðast vera á brotaplani sem er með
strik 215 og hallar 70 til SA.
Nokkrir skjálftar eru ennþá á Holta- og Hestvatnssprungunum.
Norðurland
Lítil skjálftavirkni var úti fyrir Norðurlandi. Fáeinir skjálftar úti fyrir
Mynni Eyjafjarðar og við Grímsey. Þrír skjálftar voru um 8 km vestan við Ólafsfjörð.
Hálendið
Undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli mældust um 100 skjálfar í þessari viku.
Flestir skjálftanna voru undir vesturhluta Mýrdalsjökuls. Stærsti skjálftinn
þar var þ. 9. feb. kl. 02:19, M=2.5.
Þann 4. febrúar kl. 22:18 var skjálfti í Kverkfjöllum, M=1.7. Þann 9. febrúar
kl. 10:50 var skjálfti við Öskju, M=1.5.
Gunnar B. Guðmundsson