Í vikunni mældust 162 atburðir, þar af 3 sprengingar við Búðarháls og 1
við Grindavík.
Suðvesturland
Stærsti skjálfti vikunnar mældist aðfararnótt fimmtudagsins. Átti hann
upptök sín úti fyrir mynni Ölfusáróss, um miðja vegu milli Þorlákshafnar
og Eyrarbakka og mældist um 3 á Richter. Skjálftanum fylgdu 2 smáir
eftirskjálftar. 3 skjálftar mældust við Bláfjöll, staðsetningar
skjálftanna sem lenda í Bláfjöllunum sjálfum eru ónákvæmar.
Norðurland
Á laugardag mældust 2 skjálftar við mynni Skagafjarðar, báðir um 1,5
á Richter. Seinni part vikunnar mældist skjálfti við Kröflu og 2
skjálftar við Þeistareyki. Þessir skjálftar eru allir smáir, um 0,5 - 0,6
á Richter.
Hálendið
Nokkur virkni er á hálendinu þessa viku. Í Mýrdalsjökli mældust 43 skjálftar og
2 í Eyjafjallajökli. Flestir skjálftanna áttu upptök við Goðabungu, en
örfáir innan Kötluöskjunnar. Erfitt er að staðsetja minnstu skjálftana við
Goðabungu og veldur það þessari dreifingu á kortinu.
2 skjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu, 1 í Langjökli, 2 á Haukadalsheiði
og 2 í Ódáðahrauni. Í Vatnajökli mældust skjálftar við Bárðarbungu,
Lokahrygg og Grímsfjall. Nú er stafræni jarðskjálftamælirinn á Grímsfjalli
kominn í fulla notkun og því er kerfið orðið næmara fyrir skjálftum á því
svæði.