Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20021202 - 20021208, vika 49

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni mældust 270 jarðskjálftar auk nokkurra sprenginga. Stærsti skjálftinn var við Grímsey 2.8 stig.

Suðurland

Á Suðurlandsundirlendinu voru dreifðir smáskjálftar. Í Fagradalsfjalli kom smáhrina 3. desember, á tímabilinu kl 18-22 mældust á fjórða tug skjálfta, þeir stærstu 2.4 og 2.3 stig. Flestir voru um 1 stig eða minni.

Norðurland

Um 30 skjálftar mældust skammt norðan við Grímsey, komu þeir í tveimur hrinum, á mánudag 2. og sunnudag 8. des. Stærstu skjálftarnir voru 2.8 og 2.7 stig, en aðrir voru smáir. Aðrir skjálftar fyrir norðan voru einnig smáir.

Hálendið

Í Mýrdalsjökli mældust 138 skjálftar, flestir í vestanverðum jöklinum. 20 skjálftanna voru yfir 2.0 stig að stærð, en stærstir voru 2.5 stig. Í Skeiðarárjökli mældust nokkrir skjálftar 1.0 - 1.3 stig.

Þórunn Skaftadóttir