Í vikunni voru staðsettir 184 skjálftar og 16 sprengingar (12 við nýju Þjórsárbrúna,
2 við Þórsiós, 1 við Bröttubrekku og 1 í námu við Krossanessmiðju).
Suðurland
Þann 6. janúar kl. 06:32 var skjálfti að stærð 1.9 við Geirfugladrang á Reykjaneshrygg.
Áframhaldandi smáskjálftavirkni var á Holta- og Hestvatnssprungunum.
Norðurland
Tveir skjálftar voru á Kolbeinseyjarhrygg í vikunni.
Sá fyrri þann 06.01. kl. 20:28, M=2.5 og sá síðari 10.01. kl. 01:08, M=2.6.
Fram eftir vikunni voru nokkrir skjálftar í Öxarfirði, við Flatey og
úti fyrir mynni Eyjafjarðar.
Laugardagskvöldið þann 11.01. kl. 22:50 hófst jarðskjálftahrina á Tjörnesgrunni (Skjálfandadjúpi)
sem stóð fram til kl. 02 aðfaranótt sunnudagsins.
Stærsti skjálftnn var kl. 22:56, M=3.4. Tveir aðrir all snarpir kippir voru kl. 22:28, M=2.9 og
kl. 22:41, M=2.9.
Hálendið
Um 65 skjálftar voru staðsettir undir Mýrdalsjökli. Flestir voru undir vesturhluta hans (Goðabungu) og
voru stærstu skjálftarnir um 2.5 að stærð.
Undir Vatnajökli voru 4 skjálftar og laugardagskvöldið og fram eftir sunnudeginum (12.01) voru
um 20 smáskjálftar undir Skeiðarárjökli.
Einn skjálfti var vestan við Bláfell og einn við Herðubreiðartögl.