Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20030707 - 20030713, vika 28

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Um 170 skjálftar mældust þessa vikuna, allir smáir. Nokkrir skjálftar í Mýrdalsjökli náðu stærð yfir 2 á Richter, sá stærsti mældist 2,6. Einna athyglisverðust þessa vikuna er hrina smáskjálfta í Fljótunum í Skagafirði milli kl. 18 og 20 á miðvikudagskvöld. Á fimmtudagsmorgun varð svipuð smáskjálftahrina við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga, stærsti skjálftinn í þeirri hrinu mældist 2,1 á Richter.

Suðurland

Á Suðurlandsundirlendinu er virknin nánast eingöngu bundin við eftirskjálfta á skjálftasprungunum frá árinu 2000. Einn skjálfti mældist við Skarðsfjall. Dreifð virkni í Ölfusi nær allt vestur fyrir Geitafell og eins er dreifð smáskjálftavirkni austan við Hengil. Á Reykjanesskaga var sem fyrr segir nokkur virkni við Fagradalsfjall og einn skjálfti út af Reykjanestá. Eins mældust nokkrar sprengingar við Helguvík, en þær koma ekki fram á kortinu.

Norðurland

Alls mældust 18 skjálftar í Fljótunum frá því um hádegisbil á miðvikudag og fram undir kvöld á fimmtudag. Langlestir þeirra, þ.e. 10 skjálftar, urðu á bilinu frá kl. 18:34 til kl. 19:08 á miðvikudagskvöld. Þessir skjálftar voru allir smáir, sá stærsti mældist kl. 23:31 af stærðinni 1,3. Á sunnudagsmorgun mældist svo einn skjálfti af stærð 1,1 suður af Héðinsfirði. Tveir smáskjálftar mældust norður af Kröflu. Í því sambandi má geta þess að nýr jarðskjálftamælir við Krókóttuvötn, norður af Kröflu, var tengdur kerfinu nýverið og eykur það skjálftanæmnina á þessu svæði. Á Tjörnesbrotabeltinu var virknin nokkuð dreifð.

Hálendið

Tveir skjálftar mældust í byrjun vikunnar í Dyngjujökli, rétt sunnan við Kistufell. Þetta er nokkuð norðar en smáhrinan í Bárðarbungu vikuna áður, en þó varð einnig skjálfti á hálendinu rétt norðan við jökulinn þá vikuna. Einn skjálfti mældist á Torfajökulssvæðinu vestan við Hrafntinnusker. Á þriðjudagskvöld mældist skjálfti undir Skjaldbreið, en á sunnudagsmorgun mældust tveir skjálftar norður af Hveravöllum.

Mýrdalsjökull

Alls mældust um 50 skjálftar undir Mýrdalsjökli. Þar af var ríflega helmingur í vestanverðum jöklinum, en um 20 skjálftar staðsetjast í eða við Kötluöskjuna. Allir skjálftarnir sem eru stærri en 2 á Richter, alls 7 að tölu, eru þó í vesturjöklinum.

Steinunn S. Jakobsdóttir