Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20030818 - 20030824, vika 34

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni skráðust 378 skjálftar á landinu, auk ríflega 1000 skjálfta sem urðu í hrinu við Krísuvík á laugardag of sunnudag. Búið er að yfirfara 479 skjálfta úr Krísuvíkurhrinunni. Í Mýrdalsjökli voru staðsettir 47 skjálftar. Stærsti skjálfti vikunnar, um 5 að stærð varð í upphafi hrinunnar við Krísuvík, kl 2:00 aðfararnótt laugardags. Lítil skjálftahrina varð um 5 km NV af Geirfuglaskeri á Reykjaneshrygg á mánudagskvöld, þá mældust 9 skjálftar. 16 skjálftar urðu í stuttri hrinu á þriðjudag við Þórunnarfjöll, um 5 km SSA af Þeistareykjum. Síðan þá hefur verið nokkur virkni á Kröflusvæðinu m.a. 4 skjálftar norðvestan við Gæsadal aðfararnótt föstudags. Á þriðjudagsmorgun hófst skjálftahrina 2 km SA af Geitafelli á Hellisheiði og stóð hún fram á miðvikudag. Þar hafa mælst 59 skjálftar og er sá stærsti 1,5 að stærð. Í Fagradalsfjalli á Reykjanesi varð lítil hrina á miðvikudagseftirmiðdag. Þar hafa mælst 9 skjálftar, sá stærsti 1,6 að stærð. Kl. 16:30 á laugardag hófst hrina um 12 km ANA af Grímsey og stóð hún fram til kl. 19 á sunnudag. Alls mældust 159 skjálftar á stærðarbilinu 0.6 til 2.9. Þar af voru 10 skjálftar stærri en 2.0.

Suðurland

Norðurland

Hálendið

Kristín S. Vogfjörð