Í vikunni voru staðsettir 278 skjálftar á landinu og umhverfis það.
Suðurland
Á Holta- og Hestfjallssprungunum mældust nokkrir skjálftar, allir mjög smáir. Þá var virkni
vestur allan Reykjanesskaga, allt að Geirfugladrangi, þar sem var skjálfti 1,8 stig. Lítil hrina var í Fagradalsfjalli, þar sem stærsti skjálftinn var 1,6 stig.
Norðurland
Skjálftar úti fyrir Norðurlandi voru dreifðir. Stærsti skjálftinn var skammt norður af Grímsey, 2,2 stig.
Hálendið
Í Mýrdalsjökli voru stærstu skjálftarnir 2,5 stig, en 16 skjálftar voru stærri en 2,0. Flestir voru skjálftarnir í vestanverðum jöklinum að vanda, en einnig urðu þónokkrir innan öskjunnar. Við Grímsvötn urðu þrír skjálftar 1,1-1,4 stig og í Esjufjöllum 1,7 stig.