Í vikunni voru staðsettir 260 skjálftar og 4 sprengingar.
Suðurland
Aðfaranótt 28. júní urðu 4 skjálftar með upptök um 8 km vestur af Reykjanestá.
Þeir voru á stærðarbilinu 1.0-1.8. Þann 4.7. kl. 16:59 var smáskjálfti á Reykjanestánni, M=0.7.
Fáeinir eftirskjálftar urðu á Holta- og Hestvatnssprungunum seinni hluta vikunnar.
Þann 1.7. kl. 01:05 varð skjálft í Holtunum að stærð 2.4.
Norðurland
Úti fyrir mynni Eyjafjarðar á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu voru allmargir skjálftar
en verulega færri en vikuna á undan. Stærsti skjálftinn þar var 2.2 að stærð þann 1.7. kl. 13:41.
Nokkur skjálftavirkni var einnig frá Grímsey og inn í Öxarfjörð. Þann 3.7. varð
skjálfti að stærð 2.7 um 15 km NNA af Grímsey.
Við Kröflu og Mývatn mældust 4 smáskjálftar í vikunni.
Hálendið
Um 110 skjálftar voru staðsettir undir Mýrdalsjökli.
Tæplega 70 skjálftar voru með upptök vestan við Goðabungu. Stærstu skjálftarnir þar voru um
2.5 stig.
Um 40 skjálftar áttu upptök undir Mýrdalsjökulsöskjunni.
Þann 29.06. kl. 11:46 varð skjálfti um 3 stig í miðri öskjunni.
Þann 02.07. kl. 03:56 varð skjálfti að stærð 3.9 með upptök við
Austmannsbungu. Hann fannst í Langadal í Þórsmörk.
Fáeinir skjálftar áttu upptök undir Vatnajökli.
Þann 30.06. kl. 06:29 var skjálfti við Öskju, M=1.4.