Ísskjálftavirkni í Skeiðarárjökli 4. og 6. október



Dagana 4. og 6. október 2005 voru staðsettir um 120 ísskjálftar í Skeiðarárjökli. Auk þess sáust um 100 atburðir á mælum sem ekki var hægt að staðsetja, en eiga líklega upptök í Skeiðarárjökli. Báða dagana röðuðu skjálftarnir sér á N-S línu vestan til í jöklinum. Reynslan sýnir að skjálftar í vestanverðum jöklinum tengjast yfirleitt hlaupum úr Grænalóni. Stutt er síðan Grænalón hljóp og líkur eru á að af og til renni úr lóninu inn undir jökulinn. Það veldur misskriði í jöklinum (vestari hlutinn skríður hraðar fram) og ísskjálftar verða á mótum þar sem hraðabreytingar eru mestar. Í þessari hrinu var virknin óvenju áköf. Myndin að neðan sýnir óróarit frá jarðskjálftastöðinni á Kálfafelli frá byrjun hrinunnar 4. okt. Hver "tittur" er (oftast) vegna ísskjálfta.



Ekki varð vart við neina vatnavexti að ráði í Núpsvötnum, svo fremi sem við vitum, nema á föstudagskvöld (7. okt) var nokkuð meira í Núpsvötnum. Sennilega þarf núna ekki mikið vatn að flæða frá Grænalóni inn undir Skeiðarárjökul til að valda ísskjálftum. Allnokkur rigning mældist á svæðinu báða dagana. Línuritið að neðan sýnir uppsafnaðan fjölda skjálfta (rauður ferill) og uppsafnaða úrkomu á Laufbala (blár ferill). Ísskjálftar hefjast nokkrum klukkustundum eftir að úrkoma hefst.




Halldór Geirsson og Matthew J. Roberts