Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20051212 - 20051218, vika 50

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni voru staðsettir 182 skjálftar, 6 sprengingar og 10 líklegar sprengingar.

Suðurland

Þann 15.12. voru 3 skjálftar og einn þann 18.12. með upptök um 5 km suðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg. Þeir voru allir um 2.2 að stærð. Sama dag þann 15.12. var einn skjálfti með upptök um 27 km suðvestur af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg og annar með upptök um 152 km suðvestur frá honum að stærð 2.8.

Á Reykjanesskagnum voru 4 skjálftar dagana 14.-15. desember. Stærstur þeirra var við Krýsuvík, M=2.0.

Fáeinir skjálftar voru með upptök á Hengilssvæðinu og á Suðurlandsundirlendinu.

Norðurland

Um 39 jarðskjálftar voru með upptök um 11-12 km norður af Grímsey dagana 13. til 18. desember, aðallega þó 13.-14. desember. Stærsti skjálftinn þar var þann 14.12, kl. 02:25 að stærð 3.
Fjórir skjálftar mældust með upptök um 15 km austur af Grímsey. Sá stærsti var 1.5 að stærð. Þrír skjálftar voru um 38 km vestur af Grímsey á stærðarbilinu 1.6-1.8.
Smáskjálftahrina með um 14 skjálftum var með upptök milli Flateyjar og Húsavíkur, flestir þann 17.12. Stærsti skjálftinn í hrinunni var 1.8 að stærð þann 17.12. kl. 11:28. Fáeinir skjálftar voru með upptök inn í Öxarfirði. Einnig voru stakir skjálftar með upptök við Dalvík, Grenivík og í Fljótum.

Hálendið

Undir Vatnajökli mældust skjálftar við Hamarinn, í og við Grímsvötn, í Kverkfjöllum, við Bárðarbungu og við Kistfell norðan við Dyngjujökul.
Í byrjun vikunnar, dagana 12.-14. desember mældust 10 skjálftar með upptök undir Öræfajökli. Stærsti skjálftinn í hrinunni varð þann 14.12. kl. 04:15, 2.2 að stærð. Upptök skjálftanna voru á dýptarbilinu 2-14 km og brotlausnir þeirra voru af ýmsum gerðum.
Undir Skeiðarárjökli mældust allmargir ísskjálftar. Flestir voru þann 18.12. en þá mældust 18 ísskjálftar undir vestanverðum Skeiðarárjökli. Líklega hefur þá vatn runnið úr Grænalóni.

Undir Mýrdalsjökli mældust 7 skjálftar. Fjórir skjálftar voru með upptök undir vestanverðum jöklinum og stærstur þeirra varð þann 16.12. kl. 06:28, 2.3 að stærð. Tveir skjálftar voru undir Austmannsbungu.

Fjórir skjálftar voru með upptök á Torfajökulssvæðinu.

Þann 16.12. voru 3 grunnir skjálftar með upptök í norðaustanverðum Hofsjökli. Stærstur þeirra varð þann 16.12. kl. 07:35, M=2.1. Hugsanlegt er að þeir hafi orðið vegna ísskriðs eða skruðninga.

Fjórir smáskjálftar mældust við Herðubreið.

Einn skjálfti mældist við Mývatn og einn skjálfti mældist undir Auðkúluheiði við Blöndu þann 16.12., kl. 17:44, M=1.6.

Gunnar B. Guðmundsson