Í viku 10 mældust 285 skjálftar og nokkrar sprengingar. Stærsti skjálftinn varð austan Kleifarvatns
klukkan rúmlega hálf þrjú á mánudag og var sá metinn af stærð 4,6. Alls mældust 69 skjálftar
við Kleifarvatn í vikunni. Á Reykjaneshrygg mældust 44 skjálftar, sá stærsti 3,4 og norður af Grímsey
mældust 35 skjálftar, sá stærsti um 3. Þetta voru virkustu svæðin þessa vikuna.
Suðurland
Mánudaginn 6. mars kl. 14:30 hófst hrina jarðskjálfta rétt austan Kleifarvatns. Stærsti
skjálftinn, sem mældist af stærð 4,6, varð kl. 14:32. Skjálftinn fannst vel í Reykjavík
og allt norður í Skorradal og austur á Hvolsvöll. Fyrstu 70 mínúturnar á eftir
mældust um 40 eftirskjálftar, en síðan dró verulega úr virkninni. Þetta kort
sýnir virknina við Kleifarvatn nú (bleikir hringir) í samanburði við skjálftavirknina árið 2000
(appelsínugulir hringir). Kortið sýnir endurstaðsetta skjálfta með afstæða skekkju innan við 100 m í lengd, breidd
og dýpi. Þess má til gamans geta
að fyrsta klukkutímann eftir skjálftann mældust um 900 heimsóknir
á Skjálftavefsjá Veðurstofunnar. Nokkur virkni var úti
á Reykjaneshrygg, út af Geirfugladrangi, á undan hrinunni við Kleifarvatn og seinni part
vikunnar jókst virknin aftur bæði við Kleifarvatn og Geirfugladrang.
Aðfararnótt laugardags mældust 22 skjálftar undir Hjallafjalli, vestur af Hjallahverfinu í Ölfusi.
Stærsti skjálftinn mældist af stærð 2. Auk þess mældust skjálftar á Mosfellsheiði og við
Skeggja í Henglinum.
Norðurland
Virkni hélt áfram norður af Grímsey mest alla vikunna. Annars var virknin frekar lítil
norður af landinu nema hvað allnokkrir skjálftar mældust með upptök á afmörkuðu svæði rétt
suður af Flatey.
Hálendið
Undir Mýrdalsjökli mældust 6 skjálftar, 2 undir Goðabungu og 4 í vesturjöklinum. Á
Torfajöklulssvæðinu mældust 3 skjálftar. Virknin í Vatnajökli er með svipuðum hætti og
verið hefur síðastliðna mánuði.
Föstudaginn 10. mars mældist skjálfti af stærð 2,2 í norðaustanverðum Hofsjökli og dagana 8.-9. mars
mældust 9 skjálftar á þremur stöðum umhverfis Langjökul, í Skjaldbreið, norðan Sandvatns og í Þjófadalafjöllum
vestan við Hveravelli.