Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
---|
[Skjálftalisti] | [Fyrri vika] | [Næsta vika] | [Aðrar vikur] | [Jarðeðlissvið] |
[Suðurlandi] | [Reykjanesi] | [Hengilssvæðinu] | [Bárðarbungu] | [Lang-og Hofsjökli] | [Öskju] | [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] | [Norðurlandi] |
Þrír skjálftar mældust norðaustur undir Bárðarbungu í Vatnajökli þann 19. og 20. apríl.
Þeir voru allir um 1.7 að stærð.
Einn skjálfti var við Kverkfjöll þann 17.04.
Í kjölfar Skaftárhlaupsins mældust 2 skjálftar norðvestan við
Eystri-Skaftárketilinn. Sá fyrri var
þann 22.04. kl. 10:12, 1.9 að stærð og sá seinni þann 23.04. kl. 22:25, 2.3 að stærð.
Seinni skjálftinn hefur siggengisbrotlausn. Tveir aðrir smáskjálftar
voru vestan við ketilinn þann 23.04. kl. 16:46 og kl. 23:15.
Þeir eru fremur illa staðsettir.
Allmargar óróahviður hafa mælst á jarðskjálftamælum
í Skaftárhlaupinu. Fyrst kom smáhviða þann 22.04. um kl. 17:30. Þann 23.04.
upp úr kl. 07 komu 2 stórar óróahviður sem mældust um nær allt land. Önnur
stór óóróahviða hófst um hádegið þann 23.04. og stóð amk fram til um 14:30.
Óróamyndin sýnir mælingar frá
mælunum á Grímsfjalli (grf), Skrokköldu (skr) og Kálfafelli (kal)
Smáóróahviður sáust á mælinum á Grímsfjalli (grf) fram undir hádegi á mánudag (24.04.).
Óróahviður 22.03, 23.04 og
24.04.
Orsök þessara óróahviðna geta t.d. verið vegna mikils vatnsflóðs með miklum iðuköstum eða vegna suðu og/eða suðusprenginga þegar þrýstingur fellur í katlinum. Einnig er möguleiki á að þær séu vegna innskotavirkni.
Fyrir kl. 09 um morguninn þann 23.04. bárust allmargar tilkynningar frá Norðurlandi um mikla brennisteinsfýlu, allt frá Sauðárkróki og inn í Eyjafjarðardali. Á þessum tíma var sunnan og suðaustanátt.
Framhald var á hrinunni við Herðubreiðartögl frá fyrri viku. Um 95 skjálftar mældust þessa viku
og voru stærstu skjálftarnir rúmlega 2 að stærð. Afstæðar staðsetningar
sýna að upptök skjálftanna voru á brotafleti með strik um N50°A.
Tveir smáskjálftar mældust við Mývatn.