Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20060522 - 20060528, vika 21

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Það voru 177 jarðskjálftar staðsettir í viku 21. Um 47% þeirra urðu á Öskju svæðinu. Skjálftarnir sem mældust voru frá -0,4 til 2,3 á Richterkvarða. Sá stærsti varð kl. 16:50 þann 27. maí um 0,5 km norður af Herðubreið. Að auki mældust 16 sprengingar eða líklegar sprengingar við hin ýmsu vinnusvæði um allt land. Til að sjá línurit af jarðskjálftavirkninni í viku 21, smellið hér.

Suðurland

Það mældust 18 jarðskjálftar á suðurlandi og sá stærsti mældist 1,4 á Richterkvarða. Á Hengilsvæðinu urðu 29 jarðskjálftar á bilinu -0,5 til 1,1 á Richterkvarða.

Reykjanesskagi

Á Reykjanesskaga urðu 5 skjálftar. Sá stærsti mældist 1,3 á Richterkvarða.

Norðurland

Á Norðurlandi urðu 15 jarðskjálftar og sá stærsti mældist 2,0 á Richterkvarða.

Hálendið

Í viku 21 urðu 12 jarðskjálftar undir Vatnajökli sem mældust á bilinu 0,9 til 2,2 á Richterkvarða.

Frá 27. til 28. maí mældust 83 jarðskjálftar í smáhrinu á Öskju svæðinu, 0,5 km norður af Herðubreið.

Mýrdalsjökull

Undir Mýrdalsjökli urðu 6 jarðskjálftar á bilinu 0,1 to 0,8 á Richterkvarða. Flestir skjálftarnir urðu við Goðabungu, rétt vestur af öskju Kötlu.

Matthew J. Roberts