Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20060619 - 20060625, vika 25

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni var staðsettur 171 skjálftar á og við landið. Stærstu skjáfltarnir voru 3.0 að stærð og urðu í Kverkfjöllum 21. júní, og út af Reykjanestá 22. júní.

Suðurland

Á Suðurlandsundirlendi og Hengilssæði mældist dreifð smáskjálftavirkni.

Reykjanesskagi

Í síðustu viku varð hrina undir Kleifarvatni. Nokkrir skjálftar urðu á sömu slóðum 19. 20. og 24. júní. Annars mældust 3 skjálftar rétt norður af Grindavík.

Norðurland

Skjálftar mældust víða úti fyrir Norðurlandi, mest bar þó á virkni 21. júní um 40 km NNV af mynni Eyjafjarðar, en þar mældust 24 skjálftar.

Hálendið

Sjö skjálftar urðu undir Vatnajökli í vikunni, sá stærsti varð í Kverkfjöllumí Kverkfjöllum aðfararnótt 21. júní og var að stærð 3.0. Þá mældust 2 skjálftar á Torfajökulssvæðinu og fjórir nærri Langjökli; tveir við Þjófakróka, vestan jökulsins, einn við Skálpanes og einn norðan jökulsins.

Mýrdalsjökull

Níu skjálftar voru staðsettir undir vestanverðum jöklinum, fjórir litlir í öskjunni og einn undir Höfðabrekkujökli. Þar að auki mældist einn skjálfti vestast undir Eyjafjallajökli; tveir við Þjófakróka, vestan jökulsins, einn við Skálpanes og einn norðan jökulsins.

Sigurlaug Hjaltadóttir