Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20060724 - 20060730, vika 30

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni voru mældir 154 skjálftar. Vikan fór rólega af stað, en aðfaranótt Sunnudagsins 30. júlí hófst hrina smáskjálfta rétt norður af Flateyjarskaga

Suðurland og Reykjanesskagi

Staðsettir voru 55 skjálftar og voru þeir allir litlir.

Norðurland

Alls voru staðsettir 84 skjálftar á Norðurlandi eða norður af landinu, en þar af voru 69 skjálftar í hrinunni norður af landinu (myndin hér til hægri sýnir aðeins skjálftana í hrinunni, gráir þríhyrningar eru skjálftastöðvar)

Hálendið

Einn skjálfti var í Langjökli. 3 í Bárðabungu og einn rétt vestan við Vatnjökul. 3 skjálftar voru í Öskju, einn syðst í Herðubreiðartögglum og 3 rétt SV við Herðubreið.

Mýrdalsjökull

Í Mýrdalsjökli voru aðeins staðsettir 3 skjálftar.

Hjörleifur Sveinbjörnsson