| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20070702 - 20070708, vika 27
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni voru staðsettir 560 skjálftar og 9 líklegar sprengingar.
Suðurland
Aðfaranótt 6. júlí var smáskjálftahrina sunnan við Kotströnd í Ölfusi.
Stærsti skjálftinn í hrinunni var um 2 að stærð kl. 03:54.
Nokkrir smáskjálftar voru á Hestvatnssprunginni.
Reykjanesskagi
Fjórir skjálftar áttu upptök á Reykjaneshrygg dagana 2.-4. júlí.
Stærsti skjálftinn þar var við Eldey þann 3.7. kl.17:18 með stærðina 2.4.
Jarðskjálftahrina við Grindavík hófst um kl. 23:30
þann 2. júlí. Stærsti skjálftinn varð kl. 23:36, 3,5 að stærð. Hann fannst vel í Grindavík.
Um 17 skjálftar mældust í hrinunni sem var að mestu lokið um þrjúleytið aðfaranótt 3. juní.
Fáeinir smáskjálftar voru við Kleifarvatn. Tveir grunnir smáskjálftar voru við
Brennisteinsfjöll og tveir smáskjálftar á um 7 km dýpi við Geitafell.
Á Hengilssvæðinu mældust nokkrir skjálftar við Ölkelduháls.
Norðurland
Tveir skjálftahrinur mældust norðan og austan við Grímsey. Einnig mældust
skjálftar inn í Öxarfirði.
Skjálftar voru í Eyjafjarðarál og fyrir mynni Eyjafjarðar.
Um 5 km NA af Gjögri mældist skjálfti að stærð 2.4 þann 8. júlí kl. 03:51.
Fimm skjálftar mældust við Þeistarreyki í vikunni og einn við Kröflu.
Stærstur þeirra var við Þeistarreyki þann 7. júlí kl. 14:39 að stærð 2.3
.
Tveir skjálftar voru á Tröllaskaga.
Hálendið
Undir Vatnajökli mældust skjálftar við Grímsvötn, Bárðarbungu og Kverkfjöll. Einnig
mældist einn ísskjálfti í Skeiðarárjökli.
Norðaustan við Öskju mældust nokkrir djúpir skjálftar. Flestir skjálftanna
í vikunni eða um 350 skjálftar áttu upptök við Upptyppinga. Þeir voru allir á um 15-20 km dýpi
og allir minni en 2 að stærð.
Við Kollóttudyngju mældist skjálfti að stærð 2.8 þann 5. júlí kl. 03:34.
Mýrdalsjökull
Undir Mýrdalsjökli mældust 19 skjálftar. Upptök þeirra voru í öskjunni og norðan við hana
en einnig við Goðabungu. Stærsti skjálftin var við Goðabungu 8. júlí kl. 14:37 með stærðina 2.3.
Satðsetning sumra minni skjálftana er ekki vel ákvörðuð.
Nokkrir skjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu og eru staðsetningar margra þeirra fremur
illa ákvarðaðar.
02. júlí: Einn skjálfti mældist við Geirfugladrang kl. 03:16, stærð 1.5. 20 skjálftar
hafa mælst við Upptyppinga. Skjálftar á Grísmeyjarbeltinu. Tveir skjálftar við Þeistareyki og einn skjálfti á Tröllaskaga.
Jarðskjálftahrina við Grindavík hófst um kl. 23:30. Stærsti skjálftinn varð kl. 23:36,
um 3,5 að stærð. 17 skjálftar við Grindavík. Hrinunni er að mestu lokið um þrjúleytið aðfaranótt 3. juní.
03. júlí:17 eftirskjálftar við Grindavík. 6 skjálftar við Krísuvík.
Skjálftar á Reykjaneshrygg. 23 smáskjálftar við Upptyppinga. Einn í Mýrdalsjökli.
04. júlí: Margir smáskjálftar við Upptyppinga. Skjálftar við
Geirfugladrang á Reykjaneshrygg.
05. júlí: Skjálftahrina um 12 km NNA af Grísmey. Skjálfti að stærð 2.6 við
Kollóttudyngja. Heldur hefur dregið úrvirkni við Upptyppinga.
06. júlí: Lítil smáskjálftahrina í Ölfusi í nótt. Skjálftahrina hófst
aftur við Upptyppinga um kl. 18 og stað fram á næsta dag.
07. júlí: Skjálftahrina við Upptyppinga. Djúpir skjálftar norðan við Öskju.
Skjálftar á Þeistareykjum.
08. júlí: Skjálfti að stærð 2.4 kl. 03:51 um 5 km NA af Gjögri.
Aframhaldandi skjálftavirkni við Upptyppinga.
Gunnar B. Guðmundsson