Ríflega 200 skjálftar voru staðsettir í vikunni. Enn mældust skjálftar undir Herðubreiðartöglum og austan Upptyppinga,
en hrinur hafa staðið yfir þar síðustu vikur. Þá mældust nokkrir skjálftar í Bárðarbungu, líkt og í síðustu viku. Út vikuna var virkni
viðvarandi norðan Langjökuls við Hundavötn. Einn skjálfti mældist á landgrunninu austur af Austfjörðum. Skjálfti, sem varð
undir Kleifarvatni á þriðjudagskvöld, fannst í Hafnarfirði.
Suðurland
Fáir og litlir skjálftar mældust á Suðurlandsundirlendi í vikunni.
Reykjanesskagi
Þriðjudaginn 7. nóvember mældust sextán skjálftar rétt norðan Geitafells. Þeir voru allir litlir, sá stærsti 2.1 að stærð. Þeir urðu flestir á u.þ.b. 7-9 km dýpi.
Tveir skjálftar voru staðsettir undir Kleifarvatni í vikunni. Sá stærri (M=2.9) varð
um klukkan 22:51 á þriðjudagskvöld 6. nóvember og fannst hann í Hafnarfirði.
Norðurland
Hálendið
Tólf skjálftar mældust við Hundavötn, norðan Langjökuls, í vikunni. Flestir skjálftarnir voru yfir tveimur að stærð, sá stærsti um 3.
Tveir skjálftar mældust við Högnhöfða, þar sem hrina hófst í síðustu viku.
Nokkrir skjálftar mældust undir Vatnajökli þessa vikuna. Fjórir skjálftar voru staðsettir í Bárðarbungu, einn skjálfti (Ml=1,4) varð
um 25 km N af Hvannadalshnjúk og einn (líklega ísskjálfti) varð í suðaustanverðum Skeiðarárjökli. Einnig mældust tveir skjálftar 2-2,6
km ASA af Hamrinum (nærri vesturjaðri jökulsins) og einn skjálfti 19 km SV af Grímsfjalli.
Um 25 skjálftar mældust við Upptyppinga þessa vikuna en talsverð aukin virkni hefur mælst þar síðan í sumar. Flestir skjálftarnir
voru staðsettir á 14-17 km dýpi. Við vestanverð Herðubreiðartögl mældust líka um 25 skálftar en hrina hefur staðið þar yfir síðustu vikurnar.
Mýrdalsjökull
Tuttugu og þrír skjálftar voru staðsettir í Mýrdalsjökli, allir undir vestanverðum jöklinum. Sá stærsti var um 2.8 að stærð en 16
skjálftar voru með M_lw > = 2. Að auki var einn
skjálfti staðsettur undir austanverðum Eyjafjallajökli.