Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20071224 - 20071230, vika 52

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í þessari viku voru staðsettir 178 jarðskjálftar. Um 51% þeirra urðu við Upptyppinga á norðaustur hálendinu. Skjálftarnir sem mældust voru af stærðinni 0.1 til 2,5. Sá stærsti varð kl. 04:37:15 þann 30. desember með upptök um 10 km norðaustur af Grímsey. Að auki mældust 5 sprengingar eða líklegar sprengingar við hin ýmsu vinnusvæði um allt land. Sjá línurit af jarðskjálftavirkninni í viku 52.

Árið 2007 mældust meira en 15 þúsund jarðskjálftar með SIL jarðskjálftamælakerfinu.

Suðurland

Í vikunni mældust 10 jarðskjálftar á Suðurlandi og sá stærsti mældist 1,7. Á Reykjanesskaga urðu 21 skjálfti. Sá stærsti mældist 1,8. Á Hengilsvæðinu urðu 9 jarðskjálftar á stærðarbilinu 0,1 til 1,8.

Norðurland

Á Norðurlandi urðu 28 jarðskjálftar og sá stærsti mældist 2,5.

Hálendið

Yfir 90 smáskjálftar mældust austan við Upptyppinga. Virkni á þessu svæði hefur mælst af og til síðan í apríl.

Í viku 52 urðu 3 jarðskjálftar undir Vatnajökli. Skjálftarnir voru af stærðinni 2,1 til 2,2.

Mýrdalsjökull

Undir Mýrdalsjökli urðu 11 jarðskjálftar og sá stærsti mældist 2,2. Flestir skjálftarnir urðu við Goðabungu, rétt vestur af Kötluöskjunni.

Matthew J. Roberts