Veðurstofa Íslands
Eftirlits- og spásvið |
---|
[Fyrri mán.] | [Næsti mán.] | [Aðrir mánuðir og vikur] | [Jarðvárvöktun] |
Lítil skjálftavirkni var á Reykjaneshrygg í maímánuði. Vestan og sunnan við Kleifarvatn á Reykjanesskaga var viðvarandi skjálftavirkni allan mánuðinn.
Á Suðurlandi mældist mest af jarðskjálftum á Krosssprungunni sunnanverðri. Stærsti jarðskjálftinn, 2,7 stig, varð 8. maí og fannst hann á svæðinu.
Hátt í 30 skjálftar voru staðsettir í Mýrdalsjökli, flestir í vesturjöklinum og var sá stærsti um 2,5 stig. Nokkrir smáskjálftar mældust í Eyjafjallajökli og nokkuð jöfn skjálftavirkni var á Torfajökulssvæðinu.
Undir Vatnajökli mældust yfir hundrað jarðskjálftar. Mesta virknin var við Bárðarbungu og Kistufell í norðanverðum jöklinum. Stærstu jarðskjálftarnir voru tæplega þrjú stig. Einnig mældust nokkrir ísskjálftar af og til í Skeiðarárjökli.
Á svæðinu norður af Vatnajökli mældust um 140 jarðskjálftar, þeir stærstu rúmlega tvö stig. Flestir voru staðsettir norður af Upptyppingum.
Yfir 200 jarðskjálftar mældust norður af landinu í maí. Tvö svæði voru virkari en önnur, um 35 kílómetra norður af Grímsey og í Öxarfirði. Stærstu jarðskjálftarnir voru um þrjú stig.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Halldór Geirsson, Matthew J. Roberts, Sigurlaug Hjaltadóttir og Sigþrúður Ármannsdóttir.