Jarðskjálftavirkni í vikunni var með rólegra móti. Samtals voru 175 skjálftar og sprengingar staðsettar
í vikunni, þar af 13 ætlaðar sprengingar. Hvorki mældust áberandi hrinur né stórir skjálftar á landinu.
Á fimmtudagskvöldið 22. október, klukkan 19:51:28 varð hins vegar skjálfti að stærð 6.2 á tæplega
200 km dýpi á Hindu Kush svæðinu í Afghanistan (36.471°N, 70.925°A) skv. upplýsingum
á síðu USGS..
Um 9 mínútum síðar, eða klukkan 20:00:47,8, barst P-bylgjan að fyrstu stöð á Íslandi, á austanverðu landinu (Glúmsstöðum, glu).
Suðurland
Eftirskjálftar mældust í Ölfusi, einnig tveir á Hestvantssprungunni. Á Hengilssvæði voru skjálftar
staðsettir sunnan Húsmúla og við Nesjavelli.
Reykjanesskagi
Átta jarðskjáfltar mældust við Kleifarvatn og Sveifluháls, einnig fimm skjálftar austan við Eldvörp
20. október.
Norðurland
Flestir skjálftarnir á Tjörnesbrotabeltinu dreifðu sér á Skjálfanda-Grímseyjar misgengið, en einnig
urðu nokkrir skjálftar úti fyrir Eyjafirði, svo og á Kröflu-svæði.
Hálendið
Undir Vatnajökli mældust nokkrir skjálftar milli Bárðarbungu og Kistufells, norður af Grímsvötnum og
við Kverkfjöll. Líkt og verið hefur voru smáskjálftar einnig staðsettir norðan Upptyppinga, undir Herðubreið
og Herðubreiðartöglum og í Öskju. Einn skjálfti var enn fremur staðsettur á Torfajökulssvæðinu.
Mýrdalsjökull
Fjórtán skjálftar mældust undir Mýrdalsjökli, þar af a.m.k. þrír innan öskjunnar.