| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20100705 - 20100711, vika 27
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Tæplega 300 skjálftar mældust í vikunni. Mesta virknin var norðan Vatnajökuls.
Stærsti skjálfti vikunnar varð undir Bárðarbungu og var hann tæp þrjú stig að stærð.
Suðurland
Tæplega 20 smáskjálftar mældust í Ölfusi þar af helmingurinn á Kross-sprungunni. Þess utan voru nokkrir á Hengilssvæðinu og á Suðurlandsundirlendinu.
Reykjanesskagi
Um 25 skjálftar mældust á Reykjanesskaganum og voru þeir allir innan við 2 stig að stærð.
Flestir urðu þeir við Kleifarvatn en þar hófst smáhrina að sunnudagsmorgni 11. júlí og stóð hún fram
eftir degi.
Enginn skjálfti mældist á Reykjaneshrygg þessa vikuna.
Norðurland
Á fimmta tug skjálfta mældist á og úti fyrir Norðurlandi í vikunni. Í Öxarfirði mældust 15 skjálftar og var sá stærsti 2 stig að stærð.
Nokkrir skjálftar urðu í nágrenni Flateyjar og fremur rólegt var við Grímsey. Einn skjálfti mældist við Kolbeinsey og var hann 2,4 stig
og var það stærsti skjáflti sem mældist í vikunni úti fyrir Norðurlandi.
Einn smáskjálfti mældist við Kröfu og tveir við Þeistareyki.
Hálendið
Ríflega 20 skjálftar mældust undir Vatnajökli, flestir við Bárðarbungu. Stærsti skjálftinn í jöklinum
var einmitt þar og var hann 2,8 stig. Sá skjálfti var jafnframt stærsti skjálfti vikunnar á landinu öllu.
Einn skjálfti mældist tæpum tveimur kílómetrum sunnan við Grímsfjall á föstudagsmorgni 9. júlí og var hann 1,6 stig að stærð.
Þrír smáskjálftar urðu á Lokahrygg, nokkrir í Brúarjökli og einn sunnan
Öræfajökuls. Tæplega 80 skjálftar mældust á svæðinu norðan Vatnajökuls, þar af um 60 undir Herðubreiðartöglum. Þar hófst skjálftahrina á
laugardegi og stóð hún út sunnudaginn. Stærsti skjálftinn í hrinunni var 2,5 stig.
Einn skjálfti mældist í norðvesturhluta Hofsjökuls og var hann rúmlega tvö stig að stærð.
Einn smáskjálfti mældist í Eystri-Hagafellsjökli í Langjökli og nokkrir sunnan hans.
Mýrdalsjökull
Tæplega 60 skjálftar mældust undir Mýrdalsjökli, flestir í vesturjöklinum. Sex skjálftar mældust innan öskjunnar og var sá stærsti 1,4 stig að stærð.
Stærsti skjálftinn í jöklinum var um tvö stig og var hann við Goðabungu.
Undir Eyjafjallajökli mældust sex jarðskjálftar og voru þeir allir á litlu dýpi og innan við eitt stig að stærð.
Tveir smáskjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu.
Á fimmtudagskvöldið varð jarðskjálfti sem mældist 2,2 stig um fjórum kílómetrum vestan við Vestmannaeyjar.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir, Sigþrúður Ármannsdóttir