Alls mældust 421 jarðskjálftar vikuna 18.-24. júlí. Mest var virknin undir Mýrdalsjökli og mældist stærsti skjálfti vikunnar, Ml 3,8, aðfararnótt mánudagsins í norðaustanverðri Kötluöskjunni.
Aðfaranótt föstudags varð smá hrina á Reykjaneshrygg úti fyrir Reykjanestá og mældust 14 jarðskjálftar þá nótt. Alls mældust 18 skjálftar þar í vikunni. Tveir jarðskjálftar mældust norður á Kolbeinseyjarhrygg.
Suðurland
Hrina smáskjálfta varð við Húsmúla aðfararnótt laugardags og auk þess mældust þar nokkrir skjálftar á mánudag. Skjálftarnir voru allir undir 1 að stærð. Skjálftar mældust á sprungunum frá 2000 og 2008, en stærsti skjálftinn á Suðurlandi af stærð 1,8 mældist austast á svæðinu á mánudag.
Reykjanesskagi
Við Kleifarvatn og Krísuvík mældust 16 jarðskjálftar, sá stærsti Ml 1. Einn skjálfti mældist við Fagradalsfjall. Tveir skjálftar mældust í Heiðmörk og tveir í nágrenni við Bláfjöll.
Norðurland
Í Tjörnesbrotabeltinu mældust 106 skjálftar í vikunni, sá stærsti mældist 2,8 í Öxarfirði. Fimm skjálftar mældust við Þeistareyki og þrír við Kröflu.
Hálendið
Á Torfajökulssvæðinu mældust 33 skjálftar, allir litlir og er mikil óvissa í staðsetningum þeirra. Nýju stöðvarnar við Mýrdalsjökul koma þarna sterkar inn.
Fyrri part vikunnar mældust sex skjálftar við Hamarinn í Vatnajökli. Alls mældust 19 skjálftar undir Vatnajökli í vikunni, sá stærsti Ml 1,8
Við Dyngjufjöll og Herðubreið mældust níu skjálftar, sá stærsti 1,6.
Mýrdalsjökull
Alls mældust 127 jarðskjálftar undir Mýrdalsjökli í vikunni, þar af voru 105 af stærð minni en 1. Stærsti skjálftinn mældist klukka 02:02 á mánudagsmorgun af stærð 3.8. Langflestir skjálftanna mældust innan Kötluöskjunnar, eða um 80, en 22 skjálftar mældust við Goðabungu og 20 skjálftar við ónefndan skriðjökul við suðurjaðar Mýrdalsjökuls.
Seinni partinn á þriðjudag jókst leiðni í Múlakvísl og náði leiðnin hámarki um klukkan 6 að morgni fimmtudags. Engin greinileg merki voru um aukinn óróa samfara þessum leiðnipúlsi og vatn hækkaði aldrei neitt verulega, en nokkuð öruggt er þó að vatn hefur lekið frá kötlunum á þessum tíma.