Veðurstofa Íslands
Eftirlits- og spásvið |
---|
[Fyrri mán.] | [Næsti mán.] | [Aðrir mánuðir og vikur] | [Jarðvárvöktun] |
Suðurland
Rúmlega 70 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu þar af helmingurinn á
niðurdælingarsvæði Orkuveitunnar við Húsmúla. Nánanst öll sú virkni var síðari
hluta mánaðarins og mest í síðustu vikunni. Allir voru skjálftarnir um og innan
við einn að stærð.
Smáhrina varð snemma morguns þann 19. september vestan Hengilsins með um tug
skjálfta og var sá stærsti rúm tvö stig. Í fyrstu viku mánaðarins urðu nokkrir
skjálftar suðvestur af Ölkelduhálsi í Hengli og var sá stærsti 2,4 að stærð.
Tæplega 20 skjálftar mældust á Kross-sprungunni og nokkrir í Þrengslum og
Hjallahverfi. Um 40 skjálftar mældust á þekktum sprungum á Suðurlandsundirlendi,
allir um og innan við einn að stærð. Einn, lítill og grunnur skjálfti varð undir
Heklu og tveir skjálftar í Vatnafjöllum, um átta kílómetrum sunnan Heklu og var
sá stærri tvö stig.
Reykjanes
Um 20 skjálftar, allir litlir, mældust við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga,
flestir í smáhrinu þann 8. september. Nokkrir skjálftar urðu vestar á
Reykjanesskaganum en rólegt á Reykjaneshrygg. Tæplega 30 skjálftar voru
staðsettir við Kleifarvatn, stærstu rúmt stig. Nokkrir skjálftar mældust í
Brennisteinsfjöllum sunnan Helgafells, stærsti 2,8, auk þess mældust nokkrir
litlir skammt sunnan við skíðasvæðið í Bláfjöllum.
Norðurland
Yfir helmingur skjálfta mánaðarins átti upptök í Tjörnesbrotabeltinu norður af landinu.
Skjálftarnir voru þó allir innan við þrjú stig að stærð. Mesta virknin var úti fyrir
mynni Eyjafjarðar á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu. Dagana 21. - 22. mældust þar nokkrir
tugir skjálftar, en aðalvirknin hófst 25. september. Yfir 700 skjálftar urðu í september,
en hrinan hélt áfram af meira krafti fyrstu viku októbermánaðar. Í september var stærsti
skjálftinn 2,9, en nokkrir skjálftar stærri en þrjú stig mældust fyrstu daga október. Sá
stærsti varð 2. október, 3,8 að stærð. Þessi virkni er austsuðaustan við
aðal skjálftavirknina fyrir ári.
Á annað hundrað skjálftar mældust í Öxarfirði og um 60 á Grímseyjarbeltinu. Nokkrir
smáskjálftar mældust við Flatey á Skjálfanda. Smáskjálftar mældust af og til á
Þeistareykja- og Kröflusvæðum.
Hálendi
Innan við hundrað skjálftar áttu upptök undir Vatnajökli. Lítil jarðskjálftahrina varð
undir Lokahrygg, í nágrenni Skaftárkatla, dagana 6. og 7. september. Rúmlega 20 skjálftar
voru staðsettir, sá stærsti 2,1. Hátt í 20 skjálftar, stærsti 1,8, mældust undir
Öræfajökli fyrstu vikur september. Dreifðir skjálftar mældust við Bárðarbungu, Kistufell,
Kverkfjöll, Grímsvötn, Þórðarhyrnu og Skeiðarárjökul. Nokkrir ísskjálftar mældust í
Breiðarmerkurjökli. Flestir urðu 4. september, en mikil kelfing íss í Jökulsárlón fylgdi
í kjölfarið. Einn skjálfti átti upptök undir Tungnafellsjökli, norðvestan Vatnajökuls,
1,5 að stærð.
Á Dyngjufjallasvæðinu mældust rúmlega 80 skjálftar, stærsti 2,0. Flestir áttu upptök við
Herðubreiðartögl.
Vestara gosbeltið
Engir skjálftar mældust í Langjökli eða nærliggjandi jöklum þennan mánuðin. Hins
vegar urðu nokkrir við Hagafell sem er í kverkinni milli Vestri- og Eystri
Hagafellsjökla í sunnanverðum Langjökli. Dagana 23. og 24. varð smáhrina við
Tindaskaga, milli Hrafnabjarga og Skjaldbreiðar. Þar mældust 11 jarðskjálftar,
allir undir einum að stærð. Engir skjálftar mældust undir Hofsjökli
Mýrdalsjökull
Tæplega 200 skjálftar mældust undir Mýrdalsjökli, heldur færri en mánuðinn á
undan. Mesta virknin var, eins og oft áður, í vestanverðum jöklinum í nágrenni
Goðabungu, tæplega 80. Allir skjálftarnir voru undir tveimur stigum. Á fimmta
tug skjálfta mældust innan Kötluöskjunnar, flestir undir henni austanverðri.
Stærsti skjálftinn, 2,4, varð undir lok mánaðar í norðaustanverðri öskjunni og
var það jafnframt stærsti skjálftinn í jöklinum í september. Rúmlega 50
smáskjálftar voru staðsettir við Hafusárjökul, skriðjökli í sunnanverðum
Mýrdalsjökli og fáeinir í Eyjafjallajökli. Um 40 skjálftar, stærsti um tvö stig,
mældust á Torfajökulssvæðinu, flestir í hrinu í fyrstu viku mánaðarins.