| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20130415 - 20130421, vika 16
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni mældust 280 jarðskjálftar. Þó mikið hafi dregið úr jarðskjálftum á Grímseyjarbeltinu,
áttu flestir skjálftarnir upptök þar eða 130. Stærsti skjálfti vikunnar var 2,9 stig við Grímsey.
Lítil skjálftahrina varð við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga 21. apríl með yfir 40 skjálfta,
stærsti 2,1 stig.
Reykjanesskagi
Hrina smáskjálfta varð við Fagradalsfjall sunnudagskvöld 21. apríl.
Yfir 40 skjálftar mældust, stærsti 2,1 stig. Nokkrum kílómetrum austan
Reykjanestáar mældust fimm smáskjálftar, 0,6 - 1,0 stig. Á Krýsuvíkursvæðinu
mældust innan við 10 skjálftar, allir innan við eitt stig.
Aðeins tveir skjálftar mældust á Reykjaneshrygg, langt suður á hrygg, 2,8
stig, og einn við Geirfuglasker, 1,5 stig.
Suðurland
Rólegt var á Hengilssvæðinu og í Ölfusi. Um 20 smáskjálftar mældust alls, við
Húsmúla á Hellisheiði, á Krosssprungu, við Raufarhólshelli, Ingólfsfjall
og Hengilinn.
Á Suðurlandsundirlendi mældist innan við tugur skjálfta, og allir um og innan
við einn að stærð. Flestir urðu við Leirubakka í Landssveit og við Selsund.
Norðurland
Mikið hefur dregið úr eftirskjálftavirkni á Grímseyjarbeltinu, en þar varð
snarpur jarðskjálfti í byrjun apríl, 5,5 að stærð, og þúsundir eftirskjálfta.
Í vikunni mældust þar um 130 skjálftar, stærsti 2,9 stig. Um 20 skjálftar
mældust í Eyjafjarðarál og á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu, allir innan við
tvö stig. Nokkrir skjálftar mældust í Öxarfirði, stærsti 1,5 stig.
Hálendið
Aðeins 12 skjálftar mældust undir Vatnajökli, allir innan við tvö stig.
Upptök þeirra voru við Kistufell, undir Dyngjujökli, við Kverkfjöll, á Lokahrygg við
Skaftárkatla, norðan Grímsvatna og við Þórðarhyrnu.
Norðan Vatnajökuls mældust innan við tíu smáskjálftar. Einn mældist við
Herðubreið og fimm við Öskju. Tveir skjálftar áttu upptök við Lokatind við
ytri Dyngjufjöll. Allir voru innan við einn að stærð.
Tveir skjálftar, 0,9 og 1,7 stig, mældust við Jarlhettur sunnan Langjökuls, þar sem var
skjálftahrina um mánaðamótin mars-apríl.
Mýrdalsjökull
Undir Mýrdalsjökli mældist um tugur skjálfta, aðeins þrír innan
Kötluöskju. Stærsti varð við Goðabungu, rúmlega tvö stig. Á Torfajökulssvæðinu
mældust þrír skjálftar, um einn að stærð.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir
23. apríl 2013