Skjálftavirkni fremur lítil í viku 30, 22. - 28. júlí. Aðeins staðsettir 134 skjálftar og enginn þeirra stór.
Stærstur þessara smáskjálfta mældist um 2.5 stig um hálf fjögur mánudaginn 22. júlí í Mýrdalsjökli.
Suðurland
Fáeinir skjálftar mældust hér og þar um suðurlandið.
Reykjanesskagi
13 smáskjálftar mældust í grennd við Krísuvík og 3 á hryggnum úti fyrir Reykjanesi.
Norðurland
Nokkrir skjálftar mældist úti fyrir norðurlandi. 5 voru staðsettir vestan við Þeistareykjabungu.
Hálendið
14 skjálfar voru staðsettir í grenndi við Herðubreið og Öskju. 4 í Bárðarbungu og einn skammt suðaustur af Hamrinum í Vatnajökli.
Mýrdalsjökull
36 skjálftar voru staðsettir undir og við jaðar Mýrdalsjökuls.