| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20131021 - 20131027, vika 43
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Um 250 jarðskjálftar mældust í vikunni. Þeir voru allir smáir, um og innan við tvö stig. Virkasta svæðið var
norður af Tjörnesi, en þar hefur mælst mikill fjöldi skjálfta síðustu vikurnar.
Suðurland
Við Húsmúla mældust smáskjálftar alla vikuna, samtals 25. Allir voru innan við eitt stig að stærð.
Nokkrir smáskjálftar mældust einnig við Hveradali, Raufarhólshelli og á suðurhluta Krosssprungu.
Á Suðurlandsundirlendinu mældust um 15 skjálftar, allir smáir. Að kvöldi þann 23. október mældust tveir
skjálftar undir Heklu, 0,7 og 1,1 stig. Nokkrir skjálftar áttu upptök á Hestvatnssprungu og svo öðrum
þekktum sprungum á svæðinu.
Reykjanesskagi
Fimm skjálftar mældust við Eldey á Reykjaneshrygg og einn við Geirfugladrang. Allir voru innan við tvö stig
að stærð.
Lítil skjálftavirkni var á Reykjanesskaga. Nokkrir skjálftar innan við eitt stig mældust austur af
Reykjanestá, en hrinur hafa orðið á því svæði síðustu vikur. Skjálfti 1,4 stig varð austan Grindavíkur.
Undir Vífilsfelli mældust tveir skjálftar, 0,9 og 1,8 stig.
Norðurland
Í Tjörnesbeltinu norður af landinu mældust yfir 70 skjálftar. Stærstu voru um tvö stig. Flestir áttu
upptök norðan Tjörness, en þar hefur verið mikil virkni síðustu tvær vikur. Önnur virk svæði voru
Grímseyjarbeltið, suðaustur af Flatey á Skjálfanda og nokkrir skjálftar mældust úti fyrir mynni Eyjafjarðar.
Á Þeistareykjasvæðinu mældust nokkrir smáskjálftar í kringum 0 stig. Á Kröflusvæðinu mældust átta
skjálftar, stærsti 1,1 stig.
Hálendið
Lítil skjálftavirkni var undir Vatnajökli. Innan við 20 skjálftar mældust. Um helmingur átti upptök
á Lokahrygg, stærsti 1,2 stig. Aðrir voru dreifðir um svæðið. Stærsti var 1,4 stig við Kistufell. Einn
skjálfti mældist norðvestur af jöklinum við Nýjadal. Hann var 1,1 stig.
Við Öskju og Herðubreið mældust hátt í 20 skjálftar. Stærstu voru um eitt stig og flestir austan Öskju.
Einn skjálfti mældist austan undir Skjaldbreið, 0,8 stig.
Mýrdalsjökull
Um 20 skjálftar mældust undir vestanverðum Mýrdalsjökli, á annan tug innan Kötluöskju og um tugur við
Hafursárjökul sunnan öskjunnar. Stærstu skjálftar voru rúmlega eitt stig.
Nokkrir smáir og grunnir skjálftar mældust undir Eyjafjallajökli eins og undanfarnar vikur.
Á Torfajökulssvæðinu mældust nokkrir skjálftar. Bylgjurnar voru óskýrar og staðsetning því ónákvæm.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir