Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20150615 - 20150621, vika 25

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

í Tæplega 450 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands, þar af um 100 í ganginum undir Dyngjujökli og rúmlega 30 við Bárðarbunguöskjuna. Stærsti skjálfti vikunnar mældist á Torfajökulssvæðinu þann 18. júní kl. 19:11 og var hann 2,4 að stærð. Fremur rólegt var undir Mýdalsjökli, ríflega 20 smáskjálftar áttu upptök þar en enginn þeirra var stærri en 1,5 að stærð.

Reykjanesskagi

Nokkrir smáskjálftar mældust á þekktum sprungum og jarðhitasvæðum á Reykjanesskaga, við Krýsuvík og Bláfjöll. Um tíu skjálftar urðu við Reykjanestá, allir innan við 1,5 stig. Aðeins fimm skjálftar voru staðsettir á Reykjaneshrygg.

Suðurland

Fremur rólegt var á Hengilssvæðinu, fjórir smáskjálftar áttu upptök í Hveradölum og einn við Hrómundartind. Á Suðurlandsundirlendinu mældust um 15 skjálftar á sprungum milli Ölfuss og Selsunds, allir minni en 1,5 að stærð.

Mýrdalsjökull

Tæplega 20 skjálftar voru staðsettir á Mýrdalsjökulssvæðinu, þar af um helmingur inni í Kötluöskjunni og átta við Goðaland. Enginn þeirra náði 1,5 að stærð. Jarðskjálfti af stærð 2,4 varð við Torfajökul þann 18. júní kl. 19:11 og alls mældust sex skjálftar á því svæði. Einn smáskjálfti var undir Eyjafjallajökli og einn við Heklu.

Hálendið

  • Tæplega 100 jarðskjálftar mældust í ganginum undir Dyngjujökli, sá stærsti var 1,6 að stærð þann 17. júní kl. 08:27. Um 30 skjálftar voru staðsettir á öskjubrún Bárðarbungu, allir innan við 1,5 stig.
  • Smáskjálftavirkni var við Grímsfjall og í kringum Skaftárkatlanna. Aukin órói mældist þar um helgina í kjölfar hlaupsins.
  • Sjö jarðskjálftar urðu á Veiðivatnasvæðinu milli 15. og 17. júní, allir voru þeir minni en 1 að stærð. Rúmlega 40 skjálftar áttu upptök við Öskju og Herðubreið.

    Norðurland

    Rólegt var á Norðurlandinu. Um 30 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, þar af flestir í Eyjafjardarál. Nokkrir smáskjálftar urðu á Þeistareykjum og í Kröflu.

    Kristín Jónsdóttir, Sigþrúður Ármannsdóttir og Martin Hensch