Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20220502 - 20220508, vika 18

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Um 2200 skjálftar voru staðsettir í vikunni með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands. Af þessum 2200 skjálftum hafa um 850 verið yfirfarnir. Mesta virknin var á Reykjanesskaga og var hún dreifð um skagann. Áberandi hrinur eru við Reykjanesvirkjun, Eldvörp, Sundhnjúkagíga, Hagafell austan Þorbjörns og Kleifarvatn. Þrír skjálftar yfir 3 mældust við Kleifarvatn, einn rétt eftir miðnætti fimmtudaginn 5. maí og tveir laugardaginn 7. maí. Skjálftarnir þrír fundust á höfuðborgarsvæðinu. Utan Reykjanesskagans mældust skjálftar m.a. í Bárðarbungu, Langjökli og í Öxarfirði. Tveir smáir skjálftar mældust við Heklu.

Suðurland

Rúmlega 50 skjálftar mældust á Suðurlandi í síðustu viku. Flestir voru á Suðurlandsbrotabeltinu og var stærsti skjálftinn 2,8 að stærð fimmtudaginn 5. maí við Rangárvelli. Fjórir skjálftar mældust við Vatnafjöll og tveir smáir skjálftar mældust við Heklu.

Reykjanesskagi

Yfir 1800 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í síðustu viku. Mest var virknin í tveimur litlum hrinum austan við Þorbjörn, við Sundhnjúkagíga og Hagafell, og við Kleifarvatn. Þrír skjálftar yfir stærð 3 mældust í hrinunni við Kleifarvatn, einn rétt eftir miðnætti fimmtudaginn 5. maí og tveir laugardaginn 7. maí. Skjálftarnir fundust á höfuðborgarsvæðinu. Önnur virkni á Reykjanesskaga var við Reykjanesvirkjun, Eldvörp, vestan við Borgarfjall og norðaustan við Fagradalsfjall. Úti á Reykjaneshrygg mældust um 10 skjálftar.

Vesturland

Við Langjökul mældust 7 skjálftar, þar af einn norðaustan við jökulinn þar sem hefur verið talsverð virkni undanfarnar vikur. 6 skjálftar mældust vestan við Okið, á svipuðum slóðum og mældist virkni í janúar og febrúar á þessu ári.

Norðurland

Við Kröflu mældust 13 skjálftar, 2 við Bæjarfjall og 8 skjálftar SV af Ásbyrgi.

Um 150 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, bæði á Grímseyjarbeltinu og Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Flestir skjálftanna, um 100 talsins, áttu sér stað í Öxarfirði en þrjár minni hrinur urðu við Grímsey, á Skjálfanda og við minni Eyjafjarðar.

Hálendið

Í Vatnajökli mældust tæplega 70 skjálftar. Langflestir voru í Bárðarbungu, 29 talsins, og 7 skjálftar mældust á djúpa svæðinu. Einn skjálfti mældist í Kverkfjöllum, þrír við Skaftárkatla, 9 við Grímsfjall, 5 við Háubungu, 3 í Öræfajökli og 3 skjálftar fyrir ofan Breiðamerkurjökul.

Við Öskju mældust 7 skjálftar og um 10 skjálftar við Herðubreið og Herðubreiðartögl.

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæðið

Fjórir skjálftar mældust í og við Kötluöskjuna í vikunni og einn á Torfajökulsvæðinu sem var 2,5 að stærð.

Nánar er hægt að skoða skjálftavirkni á landinu í Skjálfta-Lísu

Jarðvakt