| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20230320 - 20230326, vika 12

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Suðurland
Rúmlega 45 jarðskjálftar mældust á Suðurlandi í vikunnu og af þeim voru um 20 á Hengilsvæðinu. Stærsti skjálftinn þar mældist 1.7 að stærð. Stærsti skjálftinn á Suðurlandi mældist 1.8 að stærð þann 22. mars og var staðsettur í Vondahrauni suður af Skraðsfjalli. Önnur virkni dreifðist víða um Suðurlandsbrotabeltið.
Reykjanesskagi
Um 235 jarðskjálftar voru staðsettir á Reykjanesskaga í vikunni. Hrina hófst þann 23 mars 1.5 km norður af Hlíðarvatni og mældust um 130 skjálftar, stærsti skjálftinn mældist 2.6 að stærð en það var jafnfræmt stærsti skjálfti vikunnar á Reykjanesskaganum. Aðrir skjálftar dreifðu sér um skagann, um 40 skjálftar mældust á svæðinu í kringum Kleifarvatn og tæpir 20 skjálftar við Fagradalsfjall. Um 13 skjálftar mældust austur af Sýlingarfell og 15 skjálftar við Haugsvörðugjá.
Tæpir 25 sjálftar mældust á Reykjaneshrygg, allir staðsettir rétt úti fyrir Reykjanestá og allir undir 2 að stærð.
Norðurland
Rúmlega 26 skjálftar mældust á Grímseyjarbrotabeltinu og um 15 skjálftar á Húsavíkur og Flateyjar misgenginu. Þetta er svipaður fjöldi og í vikunni á undan. Tveir skjálftar mældust í Flókadal skammt frá Siglufirði. Einn skjálfti mældist í Lambafjöllum og þrír smáskjálftar við Kröflu.
Hálendið
Rúmega 60 jarðskjálftar mældust á hálendinu í vikunni, sem er aðeins færri en í vikunni á undan þegar um 85 skjálftar mældust. Við Herðubreið og Herðubreiðartögl mældust rúmir 15 skjálftar og við Öskju mældust rúmir 20 skjálftar, stærsti skjálftinn mældist þann 25.mars og reyndist hann 2.3 að stærð, hann var staðsettur um 4.5 km norðvestur af Öskjuvatni.
Í Vatnajökli mældust 20 skjálftar þar af fjórir í Bárðarbungu, tveir á djúpasvæðinu og tveir við Grímsfjall, sá stærri 1.9 að stærð. Þá mældust 5 skjálftar á svæðinu í kringum Skaftárkatlana og þrír við Skaftárjökul og aðrir þrír við suður af Hábungu. Þrír skjálftar mældust í og við Tungnafellsjökul, tveir í Hofsjökli og tveir í Langjökli.
Mýrdalsjökull
Rúmir 50 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli og dreifðust víða um Kötluöskjuna. Stærsti sjálftinn var 2.8 að stærð þann 22. mars. Um tugur smáskjálfta mældust vestur af Merkurjökli.
Einn jarðskjálfti af stærð 1.1 mældist suður af gígnum í Eyjafjallajökli. Tveir sjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu, sá stærri 2.3 að stærð þann 24.mars.
Jarðvakt