Samfelldar GPS mælingar

Samansettar færslumyndir til eftirlits með jarðskorpunni - Eyjafjalla- og Mýrdalsjökull


Svörtu línurnar milli stöðva á kortinu fyrir ofan sýna fyrir hvaða stöðvar línuritin fyrir neðan eru. Myndirnar að neðan sýna færslur GPS stöðvanna VMEY, THEY, SOHO og HVOL frá upphafi mælinga. Efsta myndin sýnir færslur í austur, miðmyndin færslur í norður og síðasta myndin sýnir færslur í lóðrétta þættinum, þar sem jákvæð færsla er færsla upp á við. Meginhluti gagnanna í tímaröðunum eru úr lokaúrvinnslu GPS gagnanna, en síðustu 10 til 40 dagarnir eru úr sjálfvirku úrvinnslunni og ætti síðastu punktarnir í línuritunum því að vera frá deginum í gær, enda eru línurit þessi uppfærð daglega. Engar óvissur eru teiknaðar á línuritin.
Ef nota á línuritin til eftirlits með jarðskorpunni er sennilega er best að að horfa á myndirnar með langtímatrend eða undarleg langtímafrávik í huga.
Austurfærsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Stökk í tímaröðunum eru færslur vegna Suðurlandsskjálftanna í júní 2000.

Norðurfærsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Stökk í tímaröðunum eru færslur vegna Suðurlandsskjálftanna í júní 2000.

Lóðrétt færsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Lóðrétt stökk í tímaröðinni fyrir SOHO (illgreinanlegt) er sýndarfærsla vegna loftnetshlífar sem sett var á SOHO skömmu eftir uppsetningu stöðvarinnar.

Til baka á ISGPS síðuna


Síðast breytt: 10/20/2016 13:06:49
Benedikt Gunnar Ofeigsson (gps@vedur.is).