Samfelldar GPS mælingar

Samansettar færslumyndir til eftirlits með jarðskorpunni - Vatnajökull


Svörtu línurnar milli stöðva á kortinu fyrir ofan sýna fyrir hvaða stöðvar línuritin fyrir neðan eru. Myndirnar að neðan sýna færslur GPS stöðvanna HOFN, SKRO, SAUD og GFUM frá 2004. Efsta myndin sýnir færslur í austur, miðmyndin færslur í norður og síðasta myndin sýnir færslur í lóðrétta þættinum, þar sem jákvæð færsla er færsla upp á við. Meginhluti gagnanna í tímaröðunum eru úr lokaúrvinnslu GPS gagnanna, en síðustu 10 til 40 dagarnir eru úr sjálfvirku úrvinnslunni og ættu síðustu punktarnir í línuritunum því að vera frá deginum í gær, enda eru línurit þessi uppfærð daglega. Athuga ber að niðurstöður úr sjálfvirku úrvinnslunni eru ónákvæmari en niðurstöður úr lokaúrvinnslunni. Engar óvissur eru teiknaðar á línuritin.
Ef nota á línuritin til eftirlits með jarðskorpunni er sennilega er best að að horfa á myndirnar með langtímatrend eða undarleg langtímafrávik í huga.
Austurfærsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Búið er að hliðra tímaröðunum eftir lóðás til að samanburður sé auðveldari.

Norðurfærsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Búið er að hliðra tímaröðunum eftir lóðás til að samanburður sé auðveldari.

Lóðrétt færsla stöðvanna frá upphafi mælinga. Búið er að hliðra tímaröðunum eftir lóðás til að samanburður sé auðveldari.

Til baka á ISGPS síðuna



Benedikt Gunnar Ofeigsson (gps@vedur.is).