Nokkuð róleg vika. Á sunnudag var smáhrina við norðanverðan Sveifluháls, stærsti skjálftinn mældist 2.7 á Richter.
Meiri virkni var í Eyjafjallajókli en Mýrdalsjökli þessa vikuna, en aðeins mældust tveir skjálftar í vestanverðum Mýrdalsjökli.
Þrír skjálftar mældust í Eyjafjallajökli á sunnudag milli kl 14:24 og 14:30 og voru stærðir þeirra á bilinu 1.6 - 2.0.
Í kjölfar þeirra jókst hátíðnióróinn á Miðmörk örlítið í einhverja klukkutíma, en nokkuð er óljóst hvað veldur.
Ekki er unnt að greina jarðskjálfta í þessum óróa.
Norðurland
Lítil og dreifð virkni þessa vikuna. Skjálftinn sem lendir í Þistilfirðinum er mjög illa staðsettur,
þar sem erfitt var að lesa byrjunartíma fasanna. Fleiri slíkir ,,hægir" skjálftar urðu á svæðinu, en ekki var reynt að staðsetja fleiri því skekkjan í staðsetningunni gæti numið tugum kílómetra.
Hálendið
Skjálftar mælast við Hamarinn í Vatnajökli, í Langjökli og vestan Torfajökulssvæðisins.