Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20020701 - 20020707, vika 27

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni var mesta virknin í Mýrdalsjökli, Skeiðarárjökli og út af Reykjanesi.

Suðurland

Á Suðurlandi voru skjálftar dreifðir víða og allir smáir. Smáhrina var við Geirfugladrang. Stærstu skjálftarnir voru 2.2 stig.

Norðurland

Úti fyrir Norðurlandi voru stærstu skjálftarnir 1.9 stig. Þeir voru skammt austan við Grímsey.

Mýrdalsjökull

Í Mýrdalsjökli var talsverð virkni. Hún var nokkuð jöfn framan af vikunni, en á sunnudag jókst hún og var þónokkur fram eftir mánudegi (8. júlí). 8 skjálftar mældust stærri en 2 stig, og voru þeir flestir í vestanverðum jöklinum. Stærstur var 2.6 stig, en hann var inni í öskjunni. Þá voru nokkrir grunnir smáskjálftar í Kötlujökli.

Hálendið

Nokkrir smáir skjálftar voru staðsettir í Vatnajökli, sá stærsti 1.5 stig. Nokkurs óróa varð vart á mælinum á Grímsfjalli, sem ekki er hægt að staðsetja, og gæti hann tengst hlaupi í Skaftá, sem hófst á mánudagsnótt úr vestari Skaftárkatlinum. Í vestanverðum Skeiðarárjökli mældust allmargir smáskjálftar 3. og 4. júlí, allt að 1.3 stig að stærð. Jakar á bökkum Súlu benda til þess að vaxið hafi í ánni, og því líkur á að hlaupið hafi úr Grænalóni.

Þórunn Skaftadóttir