326 skjálftar og 5 sprengingar voru staðsettar í vikunni og mesta virknin var í Norðurlandi og á Mýrdalsjökli.
Suðurland
Á Suðurlandi voru skjálftar dreifðir víða og allir smáir.
Norðurland
Úti fyrir Norðurlandi voru stærstu skjálftarnir 2,9 stig. 43 skjálftar mældust fyrir austan Grímsey og nokkrir í Öxarfirði. Skjálftahrina (46 skjálftar) var á laugardag (13/7) fyrir mynni Eyjafjarðar og stærsti skjálftinn var þá kl. 04:03, M=2.9.
Hálendið
Í Mýrdalsjökli, mældust 176 skjálftar þessa vikuna og stærstur var 2.6 stig (13/7). Á mánudegi (8. júlí) mældust tvær smáhrinur í Kötluöskjunni. Mesta virknin var í Kötluöskjunni (71 skjálftar), og í vestanverðum jöklinum (71 skjálftar). Þá voru nokkrir grunnir smáskjálftar í Kötlujökli.
Í Vatnajökli mældust tveir skjálftar við Bárðarbungu og Grímsfjall. Í vestanverðum Skeiðarárjökli mældist einn skjálfi.