Alls mældust 98 skjálftar og 1 sprenging i þessari viku, þar af 32 í Mýrdalsjökli. Stærsti skjálftinn, 2,8 mældist í Mýrdalsjökli.
Suðurland
Mesta virknin var á Hestfjallssprungunni. Smá skjálftavirkni var í Ölfusinu og Hengilinum. Um 120 km suður af landinu (62,5N, 22,0W) mældist skjálfti 2,8 stig 28. janúar.
Norðurland
Úti fyrir Norðurlandi mældust 22 skjálftar. Dreifð virkni var um allt Tjörnesbrotabeltið og mældist stærsti skjálftinn 2,2.
Hálendið
Undir Mýrdalsjökli voru 32 skjálftar. Mesta virknin var í vestanverðum jöklinum (Goðabungu) og þeir stærstu voru um 2,8 að stærð. Í Vatnajökli mældust skjálftar við Grímsfjall og austan við Þórðarhyrnu.