| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20030825 - 20030831, vika 35
PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af |
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni voru staðsettir 283 skjálftar.
Suðurland
Skjálftavirknin vestan við Kleifarvatn var enn þó nokkur og kom svolítil hrina um 7 km vestan við Reykjanestánna kvöldið 28. Ágúst, en sá stærsti í þeirri hrinu var upp á 2,2 á Richter.
Heildarfjöldi skjálfta á Reykjaneshryggnum voru 118 og voru lang flestir þeirra á sprungu rétt vestan við Kleifarvatn.
Norðurland
Fyrir norðan land voru 76 skjálftar og voru þeir flestir um 7 km SA af Flatey á Skjálfanda eða 38. 15 skjálftar voru einnig um 13 km NA af Grímsey.
Hálendið
4 skjálftar voru í Vatnajökli og einn í Langjökli. 43 skjálftar voru staðsettir í Mýrdalsjökli og var sá stærsti þar upp á 2,7 á Richter.
Hjörleifur Sveinbjörnsson