Staðsettir hafa verið 177 skjálftar í jólavikunni. Stærsti skjálftinn varð úti á Reykjaneshrygg.
Suðurland
Hrina úti á Reykjaneshrygg aðfararnótt 22.desember (mánudags).
Hrinan hófst rúmlega hálf-tvö og stóð í tæpan klukkutíma. Búið er að staðsetja 9 skjálfta úr hrinunni, á stærðarbilinu 2.5 upp í tæplega 4. Sá stærsti varð rétt fyrir tvö. Síðar í vikunni mældust nokkrir skjálftar nokkru norðar á hryggnum, flestir minni.
Á Reykjanesskaganum mældust tveir skjálftar í Fagradalsfjalli, nokkrir litlir við Núpshlíðarháls (og í Móhálsadal) og við Kleifarvatn. Allnokkrir litlir skjálftar voru staðsettir á Holtasprungunni og nokkrir á Hestfjallssprungunni og á Hengilssvæðinu.
Norðurland
Allmikil virkni var við Grímsey og víðar á Tjörnesbrotabeltinu.
Hálendið
Undir Mýrdalsjökli voru staðsettir 48 skjálftar, langflestir þeirra vestan Goðabungu. 4 skjálftar voru staðsettir
norðan Torfajökuls og fjórir við Grímsfjall.