Í vikunni mældust 159 skjálftar. Sá stærsti í mynni Eyjafjarðar 2.98.
Suðurland
Á Suðurlandi mældust nokkrir örsmáir skjálftar.
Úti á Reykjaneshrygg mældust 4 skjálftar á laugardeginum á bilinu 2 - 2.6.
Við Reykjanestá mældust 4 skjálftar seinni part vikunnar á bilinu 1 -2.
Norðurland
Í Axarfirði mældust samtals 59 skjálftar um helgina. Sá stærsti 2.67 stig á sunnudag. Í mynni Eyjafjarðar varð hrina á miðvikudag. Stærsti skjálftinn mældist 2.98 stig.
Hálendið
Líflegt var í Vatnajökli. Skjálftar mældust í Kverkfjöllum, Kistufelli, Hamrinum og Grímsvötnum. Alls 11 skjálftar á stærðarbilinu 2 -3.
Norður af Langjökli mældist 1 skjálfti 1.64 á laugardeginum. Við Öskju mældist 1 skjálfti 1.39 á sunnudag.
Mýrdalsjökull
Í Mýrdalsjökulsöskjunni mældust 6 skjálftar. Sá stærsti 2.65 stig. Í Goðabungu í vestanverðum jöklinum mældust 15 skjálftar á bilinu 1 - 2.5 stig.