Veðurstofa Íslands
Eðlisfræðisvið

Jarðskjálftar 20040405 - 20040411, vika 15

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Eðlisfræðisvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Alls mældust 212 skjálftar og 3 sprengingar þess vikuna, þar af 34 í Mýrdalsjökli. Stærsti skjálftinn, 2,7 mældist í Mýrdalsjökli (11 apríl).

Suðurland

Þrír skjálftar mældust við Geirfuglasker á Reykjaneshrygg og einn við Reykjanestá. Þar mældust 12 skjálftar í Fagradalsfjalli og 4 við Krísuvík. Á Hengilssvæði mældust 17 skjálftar og 8 í Ölfusi; þeir voru líka allir litlir. 21 skjálfti var staðsettur á Suðurlandsundirlendinu og voru þeir allir mjög litlir.

Norðurland

Úti fyrir Norðurlandi mældust 99 skjálftar. Um 44 jarðskjálftar mældust í Öxarfirðinum, dagana 5. - 6. apríl. Stærsti skjálftnn var kl. 03:37 (5/4), M=2,4. Önnur virkni norðan við land var dreifð.

Hálendið

Í Vatnajökli mældust tveir skjálftar við Grímsfjall. Einn skjálfti mældist við Öskju. Á fimmtudag mældist skjálfti undir Þórdisjökli, á föstudagskvöld mældist skjálfti undir Skjaldbreið, og á laugardag var skjálfti undir Sandvatni. 34 skjálftar mældust undir Mýrdalsjökli, flestir undir vestanverðum jöklinum. 5 voru stærri en 2,0 stig, og stærsti skjálftinn var 2,7 (kl. 21:09 11/4).

Erik Sturkell